Search
Close this search box.

Tekjufalls og lokunarstyrkir

Sæl veriði.

Vildi láta vita að búið er að opna fyrir móttöku á umsóknum um tekjufallsstyrki vegna tekjufalls rekstraraðila á tímabilinu 1. apríl til og með 31. október 2020.  

 

Eins og áður er sótt um í gegnum þjónustusíður umsækjenda á skattur.is. Ef umsækjandi um tekjufallsstyrk er félag (lögaðili) skráir prókúruhafi sig inn á sína þjónustusíðu og fer þannig inn á svæði félagsins. Sjálfstætt starfandi einstaklingur fer inn í umsóknina í gegnum sína eigin þjónustusíðu. Skilyrði fyrir tekjufallsstyrk eru nokkuð mörg og fleiri en ein leið til að reikna út bæði tekjufall, rekstrarkostnað og stöðugildi en allt eru þetta þættir sem skipta sköpum um útreikninga á styrkjunum. Reynt er að fylla út fyrirfram allar þær upplýsingar sem Skattinum er unnt en jafnframt þurfa umsækjendur sjálfir að gefa upp tilteknar upplýsingar.

 

Gott væri ef móttakendur þessa pósts kæmu á framfæri við viðskiptavini/félagsmenn sína þessum upplýsingum eftir því sem unnt er. Bent er á að ítarlegar leiðbeiningar eru á www.skatturinn.is sem gott er að kynna sér áður en hafist er handa við að fylla út umsóknina. Eftir að fullbúin umsókn berst Skattinum á almennt ekki að taka langan tíma að afgreiða hana þannig að greiðsla á að geta borist umsækjanda innan örfárra daga. Rétt er að ítreka að umsókn er ekki fullbúin fyrr en búið er að undirrita hana með rafrænum skilríkjum en nokkur brögð hafa verið að því að dregist hefur hjá umsækjendum um aðra styrki að ganga frá þeim þætti málsins.

 

 

Kveðja / Regards

 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur