Ráðinn hefur verið til starfa fyrir félagið, Margrét V. Friðþjófsdóttir og mun hún gegna starfi skrifstofustjóra.
Margrét útskrifaðist sem viðurkenndur bókari árið 2008 og hefur starfað með fræðslunefnd félagsins og situr jafnframt í stjórn. Einnig hefur hún víðtæka reynslu af bókhaldsstörfum og ýmsum félagsstörfum. Með því að þiggja starfið hjá okkur hefur hún sagt sig úr stjórn félagsins og mun varamaður stjórnar Jóhann Jóhannsson sinna hennar starfi fram að næsta aðalfundi í nóvember.
Margrét mun hefja störf hjá okkur í ágúst að sumarfríum loknum.
Við bjóðum Margréti velkomna til starfa.
Fyrir hönd stjórnar
Júlía Sigurbergsdóttir, formaður