Dagsetning: 2014-09-16
Tími frá: 17:00 – 19:30
Staðsetning: Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7
Verð: 3.000 (6.000 utanfélagsmenn)
Síðasti skráningardagur: 2014-09-11
Lýsing
ATH. Námskeiðið verður líka sent út með fjarfundarbúnaði á landsbyggðina ef næg þáttaka fæst á hverjum stað.
Námskeiðið verður haldið í Endurmenntun HÍ Dunhaga 7, stofa: Náman
Fyrirlesari er Lára Óskarsdóttir frá Vendum.is
Markmið námskeiðs: Skipulag innan tímarammans – Viðhorf og streita undir álagi – Forgangur til skilvirkni
Lára Óskarsdóttir markþjálfari fer yfir helstu þætti tímastjórnunar og skipulags sem nýtist faglega og persónulega til árangurs. Lára er menntaður kennari frá HÍ og ACC stjórnendamarkþjálfari frá HR. Hún nýtir aðferðafræði markþjálfunar við að virkja þátttakendur til athafna á námskeiðinu sem skilar frekar árangri en fyrirlestur.
Verð fyrir félagsmenn er kr. 3.000. Verð fyrir utanfélagsmenn er kr. 6.000.
Innifalið, námsgögn og kaffi í kaffihlé.
Námskeiðið gefur 3 endurmenntunarpunkta.
Sjá hér til hægri hverjir eru skráðir á námskeiðin.
Veljið viðeigandi viðburð í flettiglugganum –>