Excel kúrs fyrir bókara og þá sem vinna við að nýta upplýsingar úr gagnagrunnum hefst þann 18. október í TV – Tölvu og verkfræðiþjónustunni . Kennt verður í 4 daga lotu: fimmtudag/föstudag og mánudag/þriðjudag frá kl. 9.00 – 12.00 alla daganna. Kennari er Inga Jóna Óskarsdóttir, viðurkenndur bókari og stundakennari við TV. Skráning fer fram í skólanum í síma s. 520 9000 eða í gegn um heimasíðu skólans. Frekari upplýsingar varðandi efni veitir kennari í s. 691 0127 , einnig svarar hún fyrirspurnum í gegn um tölvupóstfangið [email protected].
Pivot töflur – veltitöflur
Excel kúrs fyrir bókara og þá sem vinna með gagnagrunna !
Kennt er hvernig er hægt að nýta sér Pivot töflur í excel með "upplýsingakerfum" og eða gagnagrunnum.
Hvernig á að lesa upplýsingarnar út og inn – búa til alls kyns filtera/síur –
Hverning nota á töflurnar til að búa til skýrslur til að auðvelda samanburð milli lykla / milli tímabila og vídda.
Hvernig hægt er að lesa saman margar töflur í einu – bæði frá gagnagrunnum og töflum út frá vef .
Hvernig taka á upplýsingar og breyta þeim á það form sem best er til að gera – til að auðvelda lestur og greiningu.
Notum til þess ýmis föll, aðallega þó textaföll, Countx, Lookup föllin og Sumif ..
Lesa saman texta og breyta textum með "föstum"
Læra hvernig sækja á upplýsingar út á veraldarvefinn beint í exceltöflu – t.d. gengisútreikninga í excelskjöl
og hvernig útbúa á tengingar beint út á vefinn á síður, sbr síður sem alltaf er verið að skoða o.s.frv.
Hvernig útbúa á skjal til vaxtaútreikninga – með fasta og breytum !
Hvernig við útbúm uppgjörslíkan með millifærslum fyrir milliuppgjör !