“Viðræður að hefjast um gerð tvísköttunarsamnings við Japan16.5.2017
Í vikunni hefjast viðræður um gerð tvísköttunarsamnings við Japan. Fyrsti formlegi fundur samninganefnda ríkjanna fer fram í Tókýó og hefst fundurinn þann 17. maí nk.
Fyrir íslensku samninganefndinni fer Maríanna Jónasdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu skattamála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, en auk hennar eiga sæti í nefndinni Ása Ögmundsdóttir lögfræðingur í ráðuneytinu og Guðrún Jenný Jónsdóttir, sviðstjóri á alþjóðasviði ríkisskattstjóra. “