Ágætu viðtakendur,
Innanríkisráðuneytið vill vekja athygli ykkar á svæði á vef ráðuneytisins um verkefni þess vegna baráttu gegn spillingu. Þar er m.a. að finna upplýsingar um Starfshóp á vegum innanríkisráðherra um eftirfylgni vegna innleiðingar á alþjóðlegum samningum gegn spillingu og mútum auk umfjöllunar eða tilvísana til alþjóðlegra samninga á þessu sviði. Jafnframt er að finna á svæðinu tengla á vefsíður frjálsra félagasamtaka, siðareglur í íslenskri stjórnsýslu og fleira. Vefurinn er í stöðugri mótun og vakin verður athygli fleiri aðila á honum. Slóðin er þessi: http://www.innanrikisraduneyti.is/verkefni/malaflokkar/spilling-og-mutur
Bestu kveðjur,
Sveinn Helgason.