Fyrirlestur mánudaginn 8. apríl 2024
Samstarfssamningur FVB og KPMG
Athugið aðeins fyrir félagsmenn FVB
Fræðsluerindi KPMG í samstarfi við FVB vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Edda Bára Árnadóttir og Björg Anna Kristinsdóttir frá KPMG verða með fyrirlestur og fara yfir helstur praktísku atriðin, gátlistan og fyrirmyndir af áhættumati og stefnu sem félagsmenn sem kaupa aðgang fá afhent.
Af hverju þarf að grípa til aðgerða:
Samkvæmt lögum nr. 140/2018, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er áhættumat grundvöllur að aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Félagsmenn FVB eru tilkynningaskyldir með vísan í l-lið[1] 2. gr. laganna en sá liður snýr að endurskoðunarfyrirtækjum, endurskoðendum, skattaráðgjöfum og aðilum sem færa bókhald eða sinna bókhaldsþjónustu fyrir þriðja aðila gegn endurgjaldi. Þess vegna höfum við látið KPMG gera eftirfarandi gögn til þess að félagsmenn FVB uppfylli þessi skilyrði
Við mælum eindregið með að allir félagsmenn sem vinna fyrir þriðja aðila gegn endurgjaldi kaupi þennan pakka. Benda má á að skatturinn getur sektað þá sem uppfylla ekki þessi skilyrði um allt að kr. 1.500.000 eða meira. ATHUGIÐ: EKKI ER LEYFILEGT AÐ DEILA SKJÖLUNUM MEÐ ÖÐRUM.
Hvað er innifalið:
Öll gögn: Gátlisti vegna AML, Stefnu og áhættumat á eigið fyrirtæki/einstaklingsrekstur og áreiðanleikakönnun á pappír til viðskiptavina bæði einstaklinga og lögaðila, ásamt kynningu KPMG í Promennt eða á TEAMS 8. apríl. Verð kr. 12.500.-
Staður, stund og verð:
Mánudagurinn 8. april frá 9-10.30/11.00 í Promennt, Skeifunni 11b eða á Teams fyrir þá sem ekki komast á staðinn. VERÐ AÐEINS KR. 12.500.-
Athugið: Fyrirlesturinn og gögnin eru AÐEINS fyrir félagsmenn FVB
ATH. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðinu.
Námskeiðið gefur 3 endurmenntunarpunkta
Skráning er á vef FVB til og með laugardags 6. apríl.
FVB – KPMG – Fræðslunefnd FVB