Námskeið – 24. Febrúar 2026 Ekki missa af þessu – skráðu þig strax! SKATTALAGABREYTINGAR, FRAMTÖL EINSTAKLINGA OG FYRIRTÆKJA. NÁMSKEIÐIÐ ER HALDIÐ ÞRIÐJUDAGINN 24. FEBRÚAR KL. 10-12 HJÁ NTV OG Í GEGNUM FJARFUNDABÚNAÐ Lúðvík mun fara yfir skattalagabreytingar og framtöl fyrirtækja og einstaklinga. Fyrirlesari: Lúðvík Þráinsson, endurskoðandi og eigandi hjá Deloitte Námskeiðið verður haldið hjá NTV og í gegnum fjarfundabúnað, þriðjudaginn 24. febrúar nk. frá kl. 10.00 – 12.00. Linkur fyrir þá sem taka þátt í námskeiðinu verður sendur út mánudaginn 23. febrúar. Athugið að við þurfum að ná lágmarks þátttöku til að geta haldið þetta námskeið og því er mikilvægt að skrá sig sem fyrst. Verð fyrir félagsmenn kr. 4.000. – Fyrir fólk utan félags kr. 6.000.- ATH. Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku á námskeiðum. Námskeiðið gefur 3,0 endurmenntunarpunkta Skráning er á vef FVB til og með mánudagsins 17. febrúar nk.
Stjórnin |