Kæri félagi, Aðalfundur Félags viðurkenndra bókara verður haldinn 19.mars 2026 kl. 17:00 á Grand Hótel – salur Gallerí. Húsið opnar kl. 16:00 fyrir þá sem sækja fundinn. Skráning fer fram á heimasíðu FVB og þarf þar að skrá sig á fundinn í síðasta lagi 15/3/25. Dagskrá 1. Kosning fundarstjóra 2. Tilnefning fundarritara og tveggja atkvæðateljara 3. Skýrsla formanns og stjórnar, umræður um skýrsluna og hún borin upp til samþykktar 4. Gjaldkeri leggur fram ársreikning félagsins fyrir 2025, umræður um ársreikninginn og hann borinn upp til samþykktar eða synjunar 5. Skýrsla laga- samskipta- og aganefndar og umræður um hana 6. Kosning formanns og varaformanns 7. Kosning meðstjórnenda 8. Kosning varamanna í stjórn 9. Kosning skoðunarmanna reikninga og eins til vara 10. Kosning í Laga-, samskipta- og aganefnd (LSA) og varamenn 11. Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs 12. Tillaga stjórnar um félagsgjald og inntökugjald næsta reikningsárs a. Breytingartillaga til aðalfundar – Félags- og inntökugjald • Tillaga um Félags- og inntökugjald borin undir atkvæði 13. Önnur mál
Bestu kveðjur, Félag viðurkenndra bókara, Guðrún Þórarinsdóttir, formaður FVB |
|
|