Sæl veriði.
Vek athygli á því að með lögum lögum nr. 37/2021 voru gerðar breytingar á lögum nr. 160/2020, um viðspyrnustyrki.
Helstu breytingar voru þessar:
· Styrktímabil var framlengt þannig að það nær nú frá 1. nóvember 2020 til og með nóvember 2021.
· Tekjufall þarf nú að hafa verið a.m.k. 40% (í stað 60% áður).
· Ef tekjufall var á bilinu 40-60% þá er hámark styrks 300.000 kr. á hvert stöðugildi í mánuðinum og ekki hærra en 1,5 milljónir í heild, að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Alveg sömu útreikningsreglur gilda og áður, sbr. leiðbeiningar þar um á vef Skattsins.
· Umsóknarfrestur var framlengdur og er nú til og með 31. desember 2021. Gildir það um allt umsóknartímabilið, þ.e. frá og með nóvember 2020 til og með nóvember 2021.
Búið er að gera breytingar á umsókn um viðspyrnustyrki og er nú hægt að sækja um fyrir þá sem orðið hafa fyrir 40-60% tekjufalli frá nóvember 2020, samkvæmt þeim reglum sem um þetta gilda, en áður þurfti tekjufall að vera a.m.k. 60% milli tilgreindra tímabila.
Eins og áður er sótt um á þjónustuvef Skattsins. Ef umsækjandi er félag (lögaðili) skráir prókúruhafi sig inn á sína þjónustusíðu og fer þannig inn á svæði félagsins. Sjálfstætt starfandi einstaklingur fer inn í umsóknina í gegnum sína eigin þjónustusíðu.
Kveðja / Regards