Search
Close this search box.

Viðspyrnustyrkir

Sæl veriði.

Vildi láta vita að búið er að opna fyrir móttöku á umsóknum um viðspyrnustyrki vegna tekjufalls rekstraraðila á tímabilinu nóvember 2020 til og með maí 2021 í samanburði við árið 2019. 

 

Eins og áður er sótt um í gegnum þjónustusíður umsækjenda á skattur.is. Ef umsækjandi um viðspyrnustyrk er félag (lögaðili) skráir prókúruhafi sig inn á sína þjónustusíðu og fer þannig inn á svæði félagsins. Sjálfstætt starfandi einstaklingur fer inn í umsóknina í gegnum sína eigin þjónustusíðu. Allt er þetta með sama hætti og verið hefur vegna annarra styrkumsókna.

 

Skilyrði fyrir viðspyrnustyrk eru nokkuð mörg og fleiri en ein leið til að reikna út bæði tekjufall, rekstrarkostnað og stöðugildi en allt eru þetta þættir sem skipta sköpum um útreikninga á styrkjunum. Reynt er að fylla út fyrirfram allar þær upplýsingar sem Skattinum er unnt en jafnframt þurfa umsækjendur sjálfir að gefa upp tilteknar upplýsingar.

 

Athugið að í þetta skipti þarf að sækja um fyrir hvern almanaksmánuð í senn og verður umsækjandi að fullklára umsókn sína með rafrænni undirskrift áður en unnt er að sækja um fyrir annan mánuð. Sé t.d. sótt um fyrir nóvember 2020 þarf að fullklára þá umsókn áður en unnt er að sækja um fyrir desember 2020, o.s.frv.

 

Gott væri ef móttakendur þessa pósts kæmu á framfæri við viðskiptavini/félagsmenn sína þessum upplýsingum eftir því sem unnt er. Bent er á að ítarlegar leiðbeiningar eru á www.skatturinn.is sem gott er að kynna sér áður en hafist er handa við að fylla út umsóknina. Eftir að fullbúin umsókn berst Skattinum á almennt ekki að taka langan tíma að afgreiða hana þannig að greiðsla á að geta borist umsækjanda innan nokkurra daga. Séu á hinn bóginn einhverjir annmarkar á umsókn getur afgreiðsla tafist. Rétt er að ítreka að umsókn er ekki fullbúin fyrr en búið er að undirrita hana með rafrænum skilríkjum en nokkur brögð hafa verið að því að dregist hefur hjá umsækjendum um aðra styrki að ganga frá þeim þætti málsins.

 

 

Kveðja / Regards

 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur