Kæru félagsmenn!
Vorfagnaður 2008
Nú er komin tími til að lyfta sér upp með hækkandi sól og hafa gaman.
Ætlum að þessu sinni að skella okkur á hina víðfrægu eyju Viðey, föstudaginn 23.maí.
Höfðum hugsað okkur að grilla létt og leigðum til þess “sumarhúsið” í Viðey – mottóið okkar er að „hafa gaman saman“ !
Grillmatur og óáfengir drykkir verða á staðnum í boði félagsins.
Endilega munið eftir lopapeysunni og almennt hlýjum fatnaði, góðum skóm, áfengum drykkjum (þeir sem það vilja) og jafnvel teppi til að sitja á.
Mæting að höfnininni, þaðan sem ferjan fer, um 18:15 — Fyrsta ferjan fer yfir sundið 18:30 tímanlega og næsta ferð verður kl. 19:00. Ókeypis verður í ferjuna.
Áhugasamir vinsamlegast tilkynnið þátttöku inni á heimasíðu félagsins www.fvb.is á þar til gerðum valhnappi fyrir kl. 12.00 miðvikudaginn 21. maí
Kær kveðja
Skemmtinefndin