Vornámskeið hjá fræðslunefnd FVB 2019
Workshop Excel
Vegna fjölda fyrirspurna höfum við ákveðið að bjóða aftur uppá Excel vinnustofu.
ATH. námskeiðið verður sent út með Skype eins og áður fyrir landsbyggðina. Námsefni verður sent rafrænt til nemenda.
Námskeiðið verður haldið í Promennt Skeifunni 11b í tölvuveri. (það þarf ekki að mæta með tölvur) Mánudaginn 15. apríl kl. 8:30 – 12:00 og þriðjudaginn 16. apríl kl. 8:30 – 12:00. Samtals 7 klst.
Kennari:
Sigurður Friðriksson fv. skólastjóri Promennt ehf. Hann hefur langa reynslu af kennslu á Excel. Mikil ánægja var með Sigurð eftir síðasta excel námskeið sem var haldið vorið 2017 svo við vildum endilega hafa hann aftur núna.
Verkefni og handout í stafrænu formi frá kennara
Námskeiðsefni fyrri dag námskeiðs.
Hagnýt atriði í notkun Excel. Greiningarföll, fjármálaföll, flýtiskipanir („Tips and tricks“) innflutningur gagna í Excel. Dagareikningar í uppgjörum í Excel. Samvinna og virkni Excel Online tekið fyrir og skoðað.
Námskeiðsefni seinni dag námskeiðs.
Pivot greiningar. Töflugerð og útlitsmótun taflna, vinna með stóra lista og gagnagrunna í Excel, röðun og síun gagna í töflu með filterum og framsetning gagna og fleira.
Ef næg þátttaka fæst verður boðið uppá fleiri námskeið/daga (kvöldnámskeið)
Hvert námskeið kostar kr. 9.900- fyrir félagsmenn og kr. 15.900- fyrir aðra.
Námskeiðið gefur 10,5 endurmenntunarpunkta.
Skráning er á vef FVB til og með 12 apríl Fjöldi þátttakenda takmarkast af stærð kennslustofu.
Fræðslunefndin