Álagningar- og innheimtuseðill lögaðila 2007 er nú aðgengilegur á þjónustusíðu á www.skattur.is
Category: Félagsfréttir
fjmrn. vefrit 1.nóv – Álagning tekjuskatts á lögaðila 2007
"Álagning tekjuskatts á lögaðila Álagning opinberra gjalda á lögaðila var birt nú í vikunni. Tekjuskattur þeirra nemur í ár samtals 42,7 ma.kr. Það er aukning milli ára um 8 ma.kr. eða 23,2%. Liðlega 15 þúsund lögaðilar greiða tekjuskatt í ár en það er um helmingur gjaldskyldra félaga. Tekjuskattstofn lögaðila nemur alls 234 ma.kr. Hluti hans […]
RSK – Tillaga um endurskoðun á skattamálum lögaðila
RSK – Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun á skattamálum lögaðila. sjá – 135. löggjafarþing 2007–2008 Þskj. 182 — 169. mál. ..
Breytingatillögur á samþykktum
Á síðasta aðalfundi var samþykkt að setja nefnd á laggirnar, sem gengið hefur undir nafninu “laganefndin” og var henni ætlað að fara yfir samþykktir félagsins. Nefndin hefur verið að störfum síðustu misserin. Með nefndinni hafa unnið stjórnarmenn FVB og síðast en ekki síst, Guðmundur B. Ólafsson hrl. lögmaður VR, en Gunnar Pálsson formaður VR bauð […]
Fjármálaráðuneyti – upplýsingaskiptasamningur við Mön
30.10.2007 Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 25/2007 Í dag var undirritaður í Osló samningur milli Íslands og Manar um upplýsingaskipti á sviði skattamála. Samhliða hafa verið gerðir þrír samningar er varða skattlagningu tekna á afmörkuðum sviðum, þ.e. samningur um að komast hjá tvöfaldri skattlagningu á tekjur einstaklinga, samningur um skattlagningu tekna af rekstri skipa og flugvéla og […]
RSK – tvísköttunarsamningur ÍSL – USA 1.jan 09 ?
Meðfylgjandi er lokatexti tvísköttunarsamnings milli Íslands og BNA. Enn er eftir að fullgilda hann og birta formlega. Í frétt ráðuneytisins sem áður var ykkur send segir svo: "Framundan er fullgildingarferli samningsins sem er afar ólíkt milli ríkjanna. Á Íslandi er samningurinn lagður fyrir ríkisstjórn til samþykktar og síðan birtur í Stjórnartíðindum eftir að löndin hafa […]
RSK – Innleiðing nýs atvinnugreinaflokkunarkerfis – ÍSAT2008
Vakin er athygli á að ríkisskattstjóri í samstarfi við Hagstofu íslands mun senda aðilum í atvinnurekstri bréf um innleiðingu nýs atvinnugreinaflokkunarkerfis um næstu mánaðamót. Í meðfylgjandi bréfi er að finna kynningu á þessu verkefni fyrir fagaðila sem kunna að þurfa að aðstoða við eða framkvæma uppfærslur á atvinnugreinanúmerum viðkomandi aðila. Bréfin verða send út næstkomandi […]
Aðalfundur Félags viðurkenndra bókara 9.nóvember 2007
Aðalfundur Félags viðurkenndra bókara verður haldinn 9.nóvember 2007, kl. 17:00 í Kiwanishúsinu, Engjateigi 11, Reykjavík. Sjá aðalfundarboð og auglýsingu endurmenntunarnefndar Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra 2. Skýrsla stjórnar og nefnda, umræður 3. Lagður fram áritaður ársreikningur af skoðunarmanni félagsins til afgreiðslu, umræður 4. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins ef um þær er að ræða 5. Kosning formanns 6. Kosning meðstjórnenda 7. Kosning […]
FVB – Námskeið í fundarsköpum / FRESTAÐ !!!!
Félagið stendur fyrir námskeiði í fundarsköpum fyrir aðalfund. Námskeiðið er á vegum JC og veruður haldið í sal VR daganna 23. og 30. okt. kl. 19.00 – 21.00 bæði kvöldin. – Þarftu að bæta kunnáttu þína í fundarhöldum og fundarsköpum – þá er þetta rétta námskeiðið fyrir þig. Verðið er krónur 6000.- bæði kvöldin. Skráning fer fram á […]
FB – Haustráðstefnan – Skattspörun
Okkur hefur borist tilkynning frá Félagi Bókhaldsstofa að félagar okkar fái sömu kjör starfsmenn þeirra á námskeiði þeirra sem haldið verður á Hamri við Borgarnes daga 2.-3.nóvember 2007 – yfirskrift daganna er "skattspörun". Sjá dagskrá og skráningu. IJO