Sjá auglýsingu
Category: Fréttir
RSK- Skattmat 2008
Skattmati 2008, Tekjur manna. Bifr.hlunnindi eldri b: 21% (ekki 23%)…Vinna erlendis (tímamark 30 SDR) 3 ár (ekki 1 ár)–sjá reglur um skattmat
RSK – orðsending launagreiðenda -Staðgreiðsla 2008
Staðgreiðsluhlutfall 35,72%, persónuafsláttur 34.034 á mánuði – sjá orðsendingu 1/2008
Gleðileg Jól !
Stjórn fvb óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra Gleðilegra jóla !
RU – skattskilin
Skv. fréttum frá Háskólanum í Reykjavík var niðurstaða Skattskilanna sem hér segir; Meðaleinkunn var 7,1 Algengasta einkunnin var 7,0 7 manns voru með yfir 9,0 Þrír aðilar sem féllu.
RSK – Frumvarp til laga um breyting á lögum um tsk…
Meðfylgjandi er nýtt frumvarp til laga. Vaðar það breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 45/1987,um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald,lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur,og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt,með síðari breytingum. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar á reglum sem varða skattlagningu á söluhagnaði lögaðila […]
RSK- breytingar v. stóra haustfrumvarpið !
Meðfylgjandi eru breytingartillögur og nefndarálit um frv. til l. um breyt. á l. nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum frá meiri hluta efnahags- og skattanefndar. Um er að ræða frumvarp sem hefur að geyma ýmis ákvæði,m.a. barnabótareglur, fjárhæðir o.fl. Meiri hluti nefndar leggur nú til ýmsar breytingar á upphafleg frumvarpi. Meðal annars er lagt […]
8. febrúar 2008 – Takið frá daginn !
Endurmenntunarnefndin hefur bókað daginn fyrir febúarraðstefnuna okkar. Frekari dagskrá auglýst síðar.
RSK – Dómur héraðsdóms v. vsk. af sölu bilaleigu á vátr.
Meðfylgjandi er dómur sem upp var kveðinn í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. (Sjá allan dóminn) Deilt var um hvort bílaleigu hafi verið heimilt að halda utan skattverðs sölu á tryggingum, sem viðskiptavinum var boðið að kaupa er þeir leigðu bifreið. Einnig snerist málið um það hvort bílaleigur hafi heimild til að selja tryggingar án þess […]
RSK – Stóra haustfrumvarpið / tekjuskattur
Meðfylgjandi er frumvarp sem lagt var fram á Alþingi í gær 28. nóv. 2007. Frumvarpið felur í sér ýmsar breytingar. Skal hér stiklað á þeim helstu: (sjá frumvarpið í heild sinni ) 1. Fjárhæðir vegna sjómannaafsláttar, barnabóta og vaxtabóta, hækka samkvæmt frumvarpinu í stíl við verðlagsforsendur. 2. Lagt er til að ríkisskattstjóri fái úrskurðarvald um […]