Félagsmenn okkar sem eru í VR! Hádegisverðarfyrirlestrar 2007 – 2008 Nú í vetur býður VR félagsmönnum á fyrirlestra í hádeginu þar sem sérfræðingar ræða um áhugaverð málefni. Fyrirlestrarnir hefjast í haus og verða upplýsingar um þá birtar á síðunni þegar nær dregur http://www.vr.is. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og ókeypis. Þeir eru haldnir í sal VR […]
RSK – ákvarðandi bréf
Meðfylgjandi er nýtt ákvarðandi bréf ríkisskattstjóra sem m.a. varðar útgáfu sölureikninga í þeim tilvikum að íslenskur sérfræðingur vinni fyrir íslensk félög . Vinna hans varði þó ekki rekstur félaganna hér á landi . Niðurstaða RSK var sú að sérfræðingurinn geti gefið út reikning á félögin án virðisaukaskatts, enda sé um að ræða þjónustu sem nýtt […]
Hennar sæti við borðið – samningatækni fyrir konur
Endurmenntun FVB ætlar að halda samningatækninámskeið í október í samstarfi við Silju Báru Ómarsdóttur. Námskeiðið byggir á fyrirlestri um samningatækni og sérstaklega stöðu kvenna og reynslu í samningum. Þó svo mörg vandamál sem taka þarf á í samningaferli hafi ekkert með kyn að gera, þá mótar reynsla okkar hvernig við bregðumst við vandamálum, og kyn […]
Takið frá daganna !
9. október og 18. október – Námskeið í samningatækni í samstarfi við Silju Báru Ómarsd. 9. nóvember – Aðalfundur og Endurmenntunarnefndin með e-h spennandi.
Myndir úr Heiðmörk
Kæru félagsmenn – myndir frá félagsfundinum eru komnar á vefinn – félagstengt efni – myndir. Eins og sjá má var mikið fjör og sungið var við gítarundirleik Bergþóru í íslenskri náttúru. IJO
Haustferðin – síðasti dagur á morgun að skrá sig !
Haustferðin Skráningin er nú hafin – og er ljóst að stjórnin mun leysa þetta í sátt og samlyndi við veðurguðina – þeir félagsmenn sem ætla að keyra sjálfir eru beðnir um að láta vita við skráningu svo ekki verði gert ráð fyrir þeim í rútusæti – ef um fellibyl verður að ræða erum við með […]
Hugleiðingar formanns
Kæru félagsmenn. Með félagsfundinum sem auglýstur hefur verið hefst haustdagskrá félagsins, en má búast við að endurmenntunarnefndin og stjórnin muni standa fyrir frekari uppákomum. Rætt hefur verið um að halda námskeið í ræðumennsku/fundarstjórn í samstarfi við JC, námskeið í samningatækni og sölumálum ásamt mörgu fleiru. En nú fer að nálgast aðalfundinn þetta árið og hefur […]
Haustferð FVB 7.september
Kæru félagsmenn! Nú er svo komið að skólarnir eru að byrja, haustið nálgast – og mun félagið standa fyrir hópeflingu viðurkenndra bókara með ferðalagi föstudaginn 7. september n.k. Við í stjórninni erum búnar að halda fyrsta fund eftir gott sumarfrí og tilbúnar í vetrarstarfið og spenntar að fá að hitta félaganna og heyra hvað á […]
RU – haustmisseri
Eftir símtal við Þórunni Sigurðardóttir verkefnastjóra hjá Háskólanum í Reykjavík fékkst það staðfest að 60 aðilar hafa verið skráðir í réttindanám bókara þetta misserið. Munu þeir hefja eiginlegt nám þann 24. ágúst – en þeir sem velja að taka undirbúningsnámskeið hefja sitt nám 10. ágúst. Er það upplýsingahlutinn sem verður fyrstur í röðinni og eru […]
RSK – Auglýsing um álagningu á einstaklinga 2007
Kærufrestur er til og með fimmtudagsins 30.ágúst nk. Þessi auglýsing birtist í lögbirtingablaðinu og dagblöðum í dag. Álagningarskrár eru opnar dagana 31.júlí t.o.m. 14.ágúst. Kærufresti lýkur 30.ágúst. Sjá auglýsingu !.