Greiðsludreifing staðgreiðslu og tryggingargjalds – umsókn opin

Sæl öllsömul,   Við viljum bara benda á að umsókn um greiðsludreifingu staðgreiðslu og tryggingagjalds til 48 mánaða hefur verið opnuð á þjónustuvef Skattsins.   Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. júní nk.   Leiðbeiningar má finna hér: https://www.skatturinn.is/einstaklingar/covid/greidsludreifing-stadgreidslu-og-tryggingagjalds/#tab1   Kveðja / Regards  

Lokunarstyrkir

Sæl veriði. Vildi láta vita að búið er að opna fyrir móttöku á umsóknum um lokunarstyrk 6, þ.e. vegna stöðvunar á starfsemi frá 25. mars s.l. til og með 14. apríl.

Maí námskeið hjá FVB Útreikningur á tekjuskattskuldbindingu ofl.

Námskeið maí  2021   Rafrænn fyrirlestur/námskeið  hjá fræðslunefnd FVB fimmtudaginn 27. maí frá kl. 9-11 Þá er komið að síðasta námskeiði okkar fyrir sumarfrí. Fyrirlesari/kennari er Lúðvik Þráinsson, endurskoðandi hjá Deloitte og kennari hjá Háskólanum í Reykjavík.