Breytingar á ferðakostnaði og akstursgjaldi ríkisstarfsmanna 28.5.2013 Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið breytingar á akstursgjaldi og á dagpeningum til greiðslu gisti- og ferðakostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands. Ákvarðanirnar taka gildi 1. júní 2013.” Akstursgjald ríkisstarfsmanna – auglýsing nr. 1/2013 Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir: Almennt gjald Fyrstu 10.000 km, kr. […]
Vinsamleg ábending frá ríkisskattstjóra
Ágætu endurskoðendur og bókarar Nú fer að liða að því að öllum vinnslukerfum ríkisskattstjóra verði læst þannig að síðbúin framtöl komist ekki inn fyrir álagningu opinberra gjalda einstaklinga 2013. Mikilvægt er því að þeir sem ekki hafa lokið skilum sínum ljúki þeim þegar í stað. Síðbúin framtöl verða tekin sem skattkæra og koma til afgreiðslu […]
Afhending veflykla til óviðkomandi aðila
Afhending veflykla til óviðkomandi aðila 2.5.2013 Ríkisskattstjóri hvetur til að rafræn skilríki verði í auknum mæli notuð til auðkenningar og þar sem við á, einnig til undirritunar. Rafræn skilríki eiga með tímanum að leysa drjúgan hluta veflykla af hólmi. Flestir nota þó enn veflykla til auðkenningar. Hver einstaklingur og hvert félag getur átt allt að […]
Fróðleiksfundir hjá KPMG
KPMG mun halda þrjá fróðleiksfundi á fimmtudögum í maí þar sem farið verður yfir nýja og mikilvæga alþjóðlega reikningsskilastaðla. Dagskráin er sem hér segir: IFRS 10 SamstæðureikningarFimmtudaginn 16. maí 2013, kl. 8:30 – 10:00 IFRS 12 Upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum félögumFimmtudaginn 23. maí 2013, kl. 8:30 – 10:00 IFRS 13 Mat á gangvirðiFimmtudaginn 30. maí 2013, kl. […]
Frestur til að skila skattframtölum framlengdur
Frestur endurskoðenda og bókara til að skila skattframtölum framlengdur Ríkisskattstjóri hefur framlengt frest þeirra sem atvinnu hafa af framtalsgerð, til skila á einstaklingsframtölum. Lokaskiladagur verður þriðjudagurinn 14. maí 2013 og gildir bæði um skattframtöl launamanna og einstaklinga með atvinnurekstur. Mikilvægt er að framtölum verði skilað jöfnum höndum, svo fljótt sem auðið er. Þá er ennfremur minnt á mikilvægi […]
Framtalsskil Lífeyrisþega
Ágætu bókarar Á næstu dögum mun Tryggingarstofnun ríkisins endurreikna forsendur bótagreiðslna ársins 2012. Við þann endurreikning mun verða tekið mið af upplýsingum úr framtalsgerð 2013. Síðbúin framtalsskil lífeyrisþega geta skapað þeim óþægindi þar sem endurreikningur fer þá fram eftir álagningu opinberra gjalda. Ríkisskattstjóri beinir því þeim vinsamlegum tilmælum til bókara að ljúka framtalsgerð bótaþega […]
ÓVISSUFERÐ
Óvissuferð Félags viðurkenndra bókara Kæru félagar ! Ferðinni hefur verið frestað þar sem þátttaka var ekki nægileg Við í skemmtinefnd FVB erum búnar að skipuleggja þessa líka æðislegu óvissuferð sem við ætlum að fara í miðvikudaginn 8. mai ( daginn fyrir uppstigningardag ) Lagt verður af stað frá Skrifstofu FVB Langholtsvegi 111 Kl. 16:00 og […]
Námskeið í skattaskilum rekstraraðila
Námskeið Næsta námskeið fræðslunefndar FVB verður í VR salnum mánudaginn 6. maí 2013 frá kl. 17.00 – 20.00. Lúðvík Þráinsson endurskoðandi frá Deloitte verður fyrirlesari að þessu sinni. Efni námskeiðsins er : Skattskil rekstraraðila RSK 1.04 Verð: kr. 3500, – fyrir félagsmenn Kr. 5500,- fyrir utanfélagsmenn Innifalið námskeið og veitingar í kaffihlé. Námskeiðið gefur 3 […]
Nýtt skipulag fjármála-og efnhagsráðuneytis
“Nýtt skipulag fjármála- og efnahagsráðuneytis 3.4.2013 Nýtt skipulag fjármála- og efnahagsráðuneytis tók gildi í dag, 3. apríl 2012, þegar ráðherra staðfesti ákvörðun um skipulag ráðuneytisins, sbr. 17. gr. laga um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011 með síðari breytingum. Þá ákvörðun sem nú er komin til framkvæmda á skipulagi ráðuneytisins má að nokkru leyti rekja til breytinga […]
KPMG APP
Kræktu í KPMG appiðapp.kpmg.is Nú er tími skattanna og því ekki úr vegi að vera með allar helstu upplýsingar við höndina. Við höfum tekið í notkun app fyrir iPad, iPhone og Android þar sem hægt er að nálgast skattabæklinginn, fá upplýsingar um viðburði og kíkja á molana en þar er að finna ýmislegt áhugavert efni. […]