Meðfylgjandi er ítarlegt frumvarp til nýrra stofnlaga um listamannalaun.
Frumvarpið varðar lítt skattskyldu eða skattákvörðun.
Þó segir í frumvarpinu að litið sé svo á að svo kölluð starfslaun skv. frumvarpinu sem verktakagreiðslu. Þannig beri starfslaunaþeginn sjálfur ábyrgð á að standa skil á lögbundnum gjöldum samkvæmt þeim reglum sem gilda um verktakagreiðslur. Er því fellt niður ákvæði gildandi laga um að greiðslur væru „að viðbættu 6% álagi" . Nú verða öll launatengd gjöld eru innifalin í ofangreindum verktakagreiðslum. Einnig er felldur niður orðsliðurinn :„Þau skulu eiga kost á aðild að Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda" þar sem hver og einn listamaður getur nú ákveðið hvernig hann ávaxtar lífeyrisgreiðslur sínar.
Tekið er fram í frumvarpinu að starfslaun eru veitt til listamannsins sjálfs . Skulu þau greidd á kennitölu viðkomandi. Á síðustu árum mun hafa færst í vöxt að listamenn stofni einkahlutafélag um starfsemi sína . Munu ýmsir hafa farið þess á leit að fá starfslaunin greidd á kennitölu einkahlutafélagsins. Slíkum beiðnum mun hafa verið hafnað til þessa . Er forsendan sú að verið sé að veita sjálfum listamanninum starfslaun en ekki fyrirtæki. Er ákvæðið sett til að taka af vafa í þessu efni
Fyrirmæli um úthlutun samkvæmt frumvarpinu koma til framkvæmda á tekjuárinu 2010.