Search
Close this search box.

RSK – Frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

Meðfylgjandi er frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Frumvarpið skiptist í ellefu kafla. Allmargir þeirra varða skattamál og skattaframkvæmd.

Sjá frumvarp

 

Skal hér drepið á því helsta:

1. Sóknargjöld.Lagt er til að fjárhæð sóknargjalda hækki ekki eins og núgildandi lög gera ráð fyrir milli áranna 2008 og 2009.
2. Útsvar. Tillaga er um að sveitarfélögum verði heimilað að hækka útsvar um 0,25 prósentustig . Hámarksútsvar færi þar með úr  13,03% í 13,28%.
Frestur til að taka ákvörðun um útsvar komandi tekjuárs 2009 var til  1. desember sl og upplýsa bar fjármálaráðuneytið um þá ákvörðun fyrir 15. desember. En hér er lagt til  að sveitarfélög hafi frest til loka árs 2008 til að taka ákvörðun um útsvarsprósentu og tilkynna hana til fjármálaráðuneytisins.
3. Tekjutenging við bætur og vistunargjöld : Gerð er tillaga um   breytinga á lögum um málefni aldraðra  og almannatryggingar á þann veg að fjármagnstekjur hafi 100% áhrif til lækkunar og breytinga í stað 50 % nú.
4. Tekjuskattur o fl honum tengt:
    a. Skatthlutfall:: Lagt er til að tekjuskattur einstaklinga verði hækkaður um 1,25 prósentustig, úr 22,75% í 24% á tekjuárinu 2009.
    b.Sjómannaafsláttur. Hækkun í 987 kr tekjuárið 2009 er lögð til varðandi sjómannaafsláttinn
     c. Barnabætur Viðmiðunarfjárhæðir fyrir tekjuárið 2008 hækki um 5,7 % í barnabótum
     d. Vaxtabætur. Viðmiðunarfjárhæðir vaxtabóta fyrir tekjuárið 2008 hækki sömuleiðis um 5,7 %
     e. Innheimta:      Tillaga er um að vaxtabótum frá og með álagningu 2009 verði ekki skuldajafnað á móti gjaldföllnum afborgunum og vöxtum af lánum Íbúðalánasjóðs og að barnabótum innheimtuársins 2009 verði ekki skuldajafnað  á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum.
    f. Stórfyritækjaeining: Hér er  lagt til að stofnun sérstakrar einingar um skattaumsýslu stórfyrirtækja  verði frestað um eitt ár og hefjist 1. janúar 2010..
5. Gildistaka: Útsvarsákvæðin taka gildi þegar við birtingu laganna. Tekjukattur og sjómannaafsláttur gildir frá tekjuári 2009. Vaxtabætur og barnabætur gilda frá og með tekjuári 2008. Innheimtureglur gilda frá 2009. Að öðru leyti koma lögin til með að gilda frá 1.jan nk. ef frv. hlýtur óbreytt samþykki. 

Close Popup

Félag viðurkenndra bókara notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Close Popup
Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda síðunnar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Tæknilegar vafrakökur
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

GDPR stillingar
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á fvb.is
  • CookieConsent

Hafna öllum vafrakökum
Save
Samþykkja allar vafrakökur