Nefndarálit og breytingartillaga við frv. til l. um breyt. á l. nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, og lögum nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa, vegna sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði frá félags- og tryggingamálanefnd fylgir hér með.
Sjá nefndarálit
Sjá breytingartillögu
Lögð er til nokkur breyting frá frumgerð frumvarps eftir að ýmsir höfðu mætt á fund nefndarinnar eða gefið umsögn um frv.
Lítur breytingin að rétti einstaklinga með rekstur til að fá bætur. Einnig að gildistökunni.
Tilgangur breytingartillögunnar ,sem er að finna í sérstöku bráðabirgðaákvæði, er að veita sjálfstætt starfandi einstaklingum svigrúm til að taka að sér tilfallandi verkefni samhliða atvinnuleysisbótum. Mættu þeir hafa allt að 100 000 kr "frítekjumark".
Það er gert að skilyrði að slíkur skattþegn tilkynni skattyfirvöldum um verulegan samdrátt í rekstrinum sem leiði til tímabundins atvinnuleysis hans.
Að því búnu getur hann sótt um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar .
Á greiðslutímabili bótanna skal hann gera grein fyrir staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi mánaðarlega og skila virðisaukaskattsskýrslum samkvæmt skráningu hans í grunnskrá virðisaukaskatts.
Fyrir liggur þá einnig að maðurinn hefur hann ekki hug á að stöðva reksturinn með öllu.
Svo segir í greinargerð nefndarinnar:
" Með verulegum samdrætti í rekstri er átt við að fram komi veruleg lækkun á reiknuðu endurgjaldi frá því sem var á fyrra tekjuári sem og að reksturinn hafi nánast stöðvast fyrir utan einstaka tilfallandi verkefni. Þannig fá skattyfirvöld og Vinnumálastofnun séð að um raunverulegt atvinnuleysi sé að ræða hjá viðkomandi og geta fylgst með þróuninni í atvinnurekstri hans. Gert er ráð fyrir að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða…."
Nánar er um þetta allt í téðu ákvæði til bráðabirgða.