Verklagslýsing fyrir stjórn, skoðunarmenn og starfsmann um skoðun á reikningum félagsins
Skoðunarmenn félagsins fá til skoðunar allt bókhald félagsins, þ.m.t. aðalbók og hreyfingarlista, bankayfirlit og lokastöður árs, auk bókhaldsmappa fyrir árið. Skoðunarmaður hefur fullan aðgang að bókhaldskerfi félagsins og getur skoðað einstakar færslur eða bókhaldið í heild.
Hlutverk skoðunarmanna er að láta í ljósi álit á bókhaldi og ársreikningum félagsins eins og það verður lagt fram á aðalfundi. Ef þörf er á óverulegum lagfæringum er unnt að leiðrétta á staðnum, en ef alvarleg frávik finnast hefur skoðunarmaður samband við stjórn félagsins og kemur á framfæri athugsemdum svo unnt sé að bregðast við þeim. Skoðunarmenn undirrita vottorð þetta án athugasemda eða með athugasemdum fáist ekki leiðrétt það sem þeir telja upp á vanta.
Skoðun fer fram í húsnæði félagsins og er lokið þegar skoðunarmaður telur sig hafa yfirfarið bókhaldið með fullnægjandi hætti.
Skoðun skal lokið eigi síðar en viku fyrir aðalfund og eru skoðunarmenn kallaðir inn um leið og fundarboð til aðalfundar er sent út, eigi síðar en hálfum mánuði fyrir aðalfund.
Formaður og gjaldkeri stjórnar bera ábyrgð á innköllun skoðunarmanna. Starfsmaður félagsins hefur öll gögn tilbúin í samráði við formann og gjaldkera og er til svara fyrir skoðunarmenn á meðan skoðað er.
Undirritaðar yfirlýsingar skoðunarmanna liggja frammi með bókhaldi á aðalfundi.
Skv. 11.gr laga félagsins þá fá skoðunarmenn greitt 3 klst. á mann fyrir þessi störf.
Yfirlýsing skoðunarmanns (prentvænt)
Samþykkt af stjórn Félags viðurkenndra bókara, 5. janúar 2017.