RSK Breyting á lögum um tekjuskatt ofl.

Meðfylgjandi eru lög nr 38, 28.maí 2008 um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, og lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum sem birt voru í A deild Stjórnartíðinda þann dag.  Sjá lög […]

FVB – tíðindi

Félagið gaf nú í annað sinn bókarverðlaun við útskrift framhaldsskóla.  Að þessu sinni hlaut Herdis Helga Arnalds, nýútskrifaður stúdent frá Verslunarskóla Íslands, verðlaunin fyrir góðan árangur í bókfærslu. Háskólinn í Reykjavík stóð fyrir þremur aðskildum námskeiðum fyrir viðurkennda bókara nú á vormánuðum.  Námskeiðið Tekjuskattsstofn fyrirtækja var aflýst vegna lélegrar þátttöku og  fáir nemendur sóttu námskeiðin Verðmat […]

Faglagnir ehf leita að bókara

Erum að leita að bókara í fullt starf hjá Faglögnum ehf. sem er pípulagningaþjónustufyrirtæki staðsett að  Funahöfða 17a. Færsla fjárhagsbókhalds, lánadrottnar og verkbókhald ásamt afstemmingum. Unnið er í DK bókhaldskerfi. Góð vinnuaðstaða í nýlega endurbættu skrifstofuhúsnæði. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Pál Haraldsson fjármála- og skrifstofustjóra í S 578-3031 eða 770-6996.

RSK – Dómur. Stjörnublikk

Meðfylgjandi er dómur Héraðsdóms Reykjavíkur 6. maí 2008 í máli Stjörnublikks ehf. gegn ríkissjóði vegna staðgreiðsluskyldu ofl.     Dómurinn felldi úr gildi ákvarðanir skattyfirvalda í málinu. Um var að ræða úrskurð skattstjórans á Reykjanesi um að fyrirtækið  ætti að halda eftir staðgreiðslu og standa skil á tryggingargjaldi vegna launa portúgalskra starfsmanna, sem störfuðu þar […]

Netbókhald.is vantar bókara

Netbókhald.is er hugbúnaðarfyrirtæki sem leigir út bókhaldskerfi á netinu og veitir viðskiptavinum sínum margvíslega þjónustu. Starfið felst m.a. í umsjón með bókhaldi fyrirtækisins og að leiðbeina notendum kerfisins, annars vegar með leiðbeiningum í síma og hins vegar með kennslu á námskeiðum. Þar sem starfið krefst töluverðrar bókhaldskunnáttu væri gott ef viðkomandi hefði reynslu af uppgjöri […]

Vorferð út í Viðey – föstudaginn 23.maí

Vorferð út í Viðey – föstudaginn 23.maí

Kæru félagsmenn!   Vorfagnaður 2008 Nú er komin tími til að lyfta sér upp með hækkandi sól og hafa gaman. Ætlum að þessu sinni að skella okkur á hina víðfrægu eyju Viðey, föstudaginn 23.maí. Höfðum hugsað okkur að grilla létt og leigðum til þess “sumarhúsið” í Viðey – mottóið okkar er að „hafa gaman saman“ […]