Vörumerking leitar að bókara

Vörumerking er meðalstjórt framleiðslu- og þjónustufyrirtæki í prentiðnaði staðsett í Hafnarfirði.  Fyrirtækið hefur verið starfrækt í 46 ár og er leiðandi á sínu sviði.  Hjá fyrirtækinu ríkir mjög góður starfsandi og sterk liðsheild er í starfsmannahópnum. Starfsvið: ·        Umsjón með bókhaldi fyrirtækisins (fjárhagur, viðskiptamenn, lánadrottnar) ·        Afstemmingar ·        Launaútreikningar og skilagreinar ·        Virðisaukaskattsuppgjör ·        Uppreikningur […]

RSK – Tvísköttunarsamningur við Indland.

Meðfylgjandi er samningur Íslands og Indlands til að koma í veg fyrir tvísköttun og undanskot. Hann var birtur í C deild Stjórnartíðinda og tók gildi 21.desember 2007 en kom til framkvæmda á Indlandi 1.apríl sl en á Íslandi þann 1.janúar sl. Þannig lýsti fjármálaráðuneytið efnisatriðum samningsins í frétt sinni í desember sl: C_nr1

Námskeið á næstunni !

Viljum minna ykkur á  á eftirfarandi námskeið sem verða haldin núna á næstunni í Háskólanum í Reykjavík. Námskeiðin eru sérstaklega sniðin að þörfum viðurkenndra bókara. Hægt er að senda tölvupóst á Þórunni   [email protected] . – Tekjuskattstofn fyrirtækja 21. og 28. apríl – Verðmat fyrirtækja 30.apríl og 7.maí – Upplýsingatækni 13. til 22. maí n.k.

RSK – Frumvarp til laga um endurskoðendur (heildarlög).

Meðfylgjandi er stjórnarfrumvarp til laga um endurskoðendur. Um er að ræða heildarlög með ýmsum nýmælum.. Frumvarpið er í samræmi við  félagatilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/43/EB frá 17. maí 2006 um lögboðna endurskoðun ársreikninga og samstæðureikninga. Er tilgangur frumvarpsins er að tryggja með betri hætti en áður að fjárfestar og aðrir hagsmunaaðilar geti reitt sig á […]

RSK – Þingsályktunartillaga. EES mál.

Meðfylgjandi er þingskjal sem varðar reikninngsskil o.þ.h. Um er að ræða þingsályktunartillögu þess efnis að breytt verði vissum ákvæðum EES samningsins í samræmi við tilskipun þar um. Í greinargerð er breytingunum lýst sem svo: "Tilskipunin miðar að því að auka trúverðugleika á fjárhagsupplýsingum fyrirtækja. Meðal helstu breytinga sem felast í tilskipuninni er að lagðar eru […]