Category: Efni frá RSK

PH Peningaþvætti tilkynning frá Skattinum

Skatturinn vill vekja athygli ykkar félagsmanna á nýrri tilkynningu embættisins vegna áhættusamra og ósamvinnuþýðra ríkja: https://www.rsk.is/fagadilar/peningathvaetti/ahaettusom-riki/ . Óskar embættið eftir því að þið vekið athygli félagsmanna ykkar á ofangreindri tilkynningu. Þá er þess jafnframt óskað að embættinu verði tilkynnt, með svari við pósti þessum, hafi orðið breytingar á þeim tengiliðum sem taka á móti pósti […]

Lokunarstyrkir

Sæl veriði. Vildi láta vita að búið er að opna fyrir móttöku á umsóknum um lokunarstyrk 5, þ.e. vegna stöðvunar á starfsemi frá 1. janúar s.l. til og með annars vegar 12. janúar og hins vegar 7. febrúar. Í raun eru það þeir rekstraraðilar sem var gert að stöðva starfsemi sína alveg frá 18. september […]

Viðspyrnustyrkir

Sæl veriði. Vildi láta vita að búið er að opna fyrir móttöku á umsóknum um viðspyrnustyrki vegna tekjufalls rekstraraðila á tímabilinu nóvember 2020 til og með maí 2021 í samanburði við árið 2019. 

Tekjufalls- og lokunarstyrkir

Góðan daginn. Langar til að benda á frétt á vefsíðu Skattsins um tekjufalls- og lokunarstyrki, sbr. hér.   Því miður hefur smíði á umsókn um tekjufallsstyrki tekið lengri tíma en áætlað var af hálfu Skattsins – en stefnt var að því að hefja móttöku á umsóknum fyrir jól. Eins og fram kemur í greindri frétt […]

Fræðslufundur um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Góðan dag,   Skatturinn boðar til fræðslufundar föstudaginn 18. desember kl. 11:00. Er þess farið á leit að tilkynning þessi verði áframsend til félagsmanna ykkar.   Viðfangsefni fundarins eru alþjóðlegar þvingunaraðgerðir, frysting fjármuna og skyldur tilkynningarskyldra aðila í því samhengi.   Fundurinn fer fram í gegnum Zoom og eru þátttakendur hvattir til virkrar þátttöku.

Lokunarstyrkir

Sæl veriði. Vildi láta vita að búið er að opna fyrir móttöku á umsóknum um lokunarstyrki sem gilda vegna stöðvunar á starfsemi frá og með 18. september, sbr. breytingar sem gerðar voru á lögum nr. 38/2020 með lögum nr. 119/2020.