Meðfylgjandi dómur varðar meint mannréttindabrot skattyfirvalda í sambandi við framlagningu álagningarskrár. Gjaldandi r stefndi er skattstjóranum í Reykjavík og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að skattstjóranum væri óheimilt, þrátt fyrir ákvæði laga um tekjuskatt, að leggja fram til sýnis álagningarskrá þar sem tilgreindir eru þeir skattar sem lagðir hafa verið á gjaldendur. […]
Category: Efni frá RSK
Lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar. Tekjutenging.
Lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar. Tekjutenging. Skuldajöfnun ofgreiddra fjármuna. Meðfylgjandi lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar voru samþykkt á Alþingi í gær en hafa enn ekki verið birt eða fengið laganúmer. Lögin kveða á um að líffæragjafar sem eru launamenn eða sjálfstætt starfandi á innlendum vinnumarkaði og verða óvinnufærir vegna […]
Cayman-eyjar. Upplýsingaskipta- og aðrir samningar. (Frétt frá fjármálaráðuneytinu).
Úr Vefriti fjármálaráðuneytisins 2. apríl 2009 Upplýsingaskiptasamningur við Cayman-eyjar 2.4.2009 Í gær var undirritaður í Stokkhólmi samningur milli Íslands og Cayman- eyja um upplýsingaskipti á sviði skattamála. Á sama tíma undirrituðu hin Norðurlöndin samhljóða samning við Cayman-eyjar. Af hálfu Íslands undirritaði Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra samninginn en fyrir hönd Cayman-eyja Alden McLaughlin, ráðherra alþjóðlegra fjármálaviðskipta. […]
REGLUGERÐ um aðstoð við gerð beiðni um heimild til að leita greiðsluaðlögunar.
REGLUGERÐ um aðstoð við gerð beiðni um heimild til að leita greiðsluaðlögunar.(Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna ) Sjá reglugerð
Nefndarálit og breytingartillögur
Nefndarálit og breytingartillögur við frv. til l. um breyt. á l. um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (einföldun reglna við samruna og skiptingu). Aðgengi skattyfirvalda að samrunaskýrslu. Í meðfylgjandi tillögum við frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög sem varðar EES reglur um einföldun reglna við samruna og skiptingu […]
Breyting á lögum um iðnaðarmálagjald
LÖG nr 21,23.mars 2009 um breyting á lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald, með síðari breytingum . (ÍSAT 2008 gildi við ákvörðun á gjaldskyldu.) Sjá lög
Lögum breytingu á lögum um málefni aldraðra. Hækkun gjalds í framkvæmdarsjóð við álagningu 2009.
Lögum breytingu á lögum um málefni aldraðra. Hækkun gjalds í framkvæmdarsjóð við álagningu 2009. Sjá lög
Frumvarp til laga umÍslandsstofu. (markaðsgjald).
Meðfylgjandi er frumvarp til laga um nýja ríkisstofnun, Íslandsstofu. Markmið frumvarpsins er að setja í lög ákvæði sem ætlað er að efla ímynd og orðspor Íslands, styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs á erlendum mörkuðum, og laða erlenda ferðamenn og fjárfestingu til landsins. Sjá frumvarp Gert er ráð fyrir að Íslandsstofa starfi á grunni Útflutningsráðs Íslands og […]
Lög um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl… (greiðsluaðlögun).
Meðfylgjandi lög um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl.,nr. 21 26. mars 1991 varða greiðsluaðlögun voru samþykkt á Alþingi 30. mars 2009. Þau hafa enn ekki verið birt eða fengið laganúmer. Sjá lög.
Frumvarp til laga flutt af allsherjarnefnd Umtímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðar
Meðfylgjandi er frumvarp sem þingnefnd semur og flytur. Varðar það greiðsluaðlögun þeirra sem skulda lán tryggð í íbúðum sínum . Frumvarpið kveður á um að greiðsluaðlögun geti aðeins varðað fasteign þar sem skuldarinn heldur heimili og hefur skráð lögheimili, enda sé um að ræða hóflegt húsnæði miðað við þarfir skuldara og fjölskyldu hans sem ætlað […]