Excel skjölin sem Lúðvík fór í á skattframtalsnámskeiðinu 27.mars sl. eru komin inn á innri vefinn, undir "Faglegt efni -> Ráðstefnu- og námskeiðsefni". Vefstjóri
Category: Fréttir
Spennandi námskeið framundan !
Við viljum minna á námskeiðið þann 15. maí n.k. í samvinnu við Hólmgeir Elías Flosason, lögfr. (Ernst & Young), sem hefur verið stundakennari í Háskólanum í Reykjavík s.l. misseri. Þann 15. maí 2009 í VR salnum (0. hæð) Fyrstir koma, fyrstir fá og fer skráning fram á vefsíðu félagsins www.fvb.is (sjá vinstra megin undir "Skráning á viðburði"). […]
Lög um tekjuskatt. Breytingar. Lokaútgáfa í Stjórnartíðindum pr. 21.04.09. Nr 45 (vaxtabætur) og 46
Lög Lög um tekjuskatt. Breytingar. Lokaútgáfa í Stjórnartíðindum pr. 21.04.09. Nr 45 (vaxtabætur) og 46 ( skattframkvæmd ofl.) Lög um breyting á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt, með síðari breytingum. Lög um breytingu á lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt
Hér er uppfærð útgáfa af yfirlitsskjali um ýmsar fjárhæðir 2009.
Hér er uppfærð útgáfa af yfirlitsskjali um ýmsar fjárhæðir 2009. Búið að breyta gjaldi í framkvæmdarsjóð aldraða og vaxtabótafjárhæðum vegna lagabreytinga á vorþingi . Karl Ó Magnússon deildarstjóri Álagningardeildar RSK annaðist um uppfærslu Breyttar fjárhæðir, frá orginal-útgáfunni síðan í janúar, eru sýndar með gulum lit í WORD skjalinu. Sjá skjal.
Lög um heimild til samninga um álver í Helguvík. Samþykkt 17.04.sl. Öðlast þegar gildi við birtingu
Meðfylgjandi eru lög sem enn eru óbirt og án stj.tíð. númers um heimild til samninga um álver í Helguvík. 4.grein þeirra er um skattamál Norðuráls ehf sem er væntanlegur rekstraaðili. Almennar skattareglur koma til með að gilda um starfsemi álversins í Helguvík með frávikum. Frávikin eru lík því sem gildir um álbræðslur á Grundartanga […]
Fleiri spennandi námskeið framundan !!!!
Við viðurkenndir bókarar eigum mjög skemmtilegt tímabil framundan, hluti uppgjöra að baki og ný framundan. Til að létta okkur vinnuna ætlum við að fá tvo lögfræðinga til liðs við okkur, Pál Jóhannesson, hdl. (Tax and Legal hf) og Hólmgeir Elías Flosason, lögfr. (Ernst & Young), en þeir hafa verið stundakennarar í Háskólanum í Reykjavík s.l. misseri. […]
Lög um breyting á lögum um tekjuskatt (hækkun vaxtabóta og breyting á viðmiðunar%)
Meðfylgjandi eru enn óbirt og ónúmeruð lög um breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt,með síðari breytingum. Lögin voru samþykkt í gær. Með þeim er vaxtabótum til útborgunar nú í sumar breytt sem og skerðingarhlutfalli hámarksvaxtagjalda til útreiknings bótanna. Sjá lög.
Lög um breytingu á lögum um tekjuskatt.(styrking skattframkvæmdar.) Stóra vorlagasetningin.
Samkvæmt meðfylgjandi lögum eru gerðar nokkrar breytingar á lögum um tekjuskatt . Lögin hafa enn ekki verið birt og eru án númers en voru samþykkt 15.apríl 2009. Sjá Lög. 1. Sett er ex tuto ákvæði í 28.grein laganna þess efnis að eftirgjöf skulda samkvæmt lögum um nauðasamninga og varða greiðsluaðlögun teljist ekki til skattskyldra […]
Maritech kynningu frestað
Maritech kynningu, sem átti að halda fimmtudaginn 16.apríl, verður frestað til 28.maí vegna lítillar þátttöku. Það verður auglýst síðar.
Þingmál: Svar fjármálaráðherra við fyrirspurn
Þingmál: Svar fjármálaráðherra við fyrirspurn um hækkun á eigin fé fjármálafyrirtækja sem felldu niður tekjuskattsskuldbindingu vegna söluhagnaðar af hlutabréfum sem hafði verið frestað Sjá svar.